Íþrótta- og æskulýðsnefnd

62. fundur 01. júlí 2016 kl. 11:25 - 11:25

62.Fundur Íþrótta og æskulýsðsnefnd, haldinn í ´þróttahúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 30.ágúst 2012, kl. 17:00

Mættir:

Ari Bent Ómarsson.

Brynja Mjöll Ólafsdóttir.

Elva Ösp Magnúsdóttir.

Snædís Hjartardóttir.

Sigrún Ólafsdóttir Íþrótta og æskulýðsfulltrúi.

  1. Starfsmannamál Félagsmiðstöðvarinnar Afdreps

Teknar voru fyrir umsóknir um starf í félagsmiðstöðina Afdrep. Sex skrifæegar umsóknir voru um starfið og voru allir umsækjendur kvenkyns. Farið var vel yfir allar umsóknir og var ákveðið að ráða þær Hafdísi Rán Brynjarsdóttur og Halldóru Kristínu Unnarsdóttur. Íþrótta og æskulýðsfulltrúa var falið að senda svarbréf til allra umsækjenda auk þess að ræða við nýráðna umsjónamenn um skipulag og fleira.

2. Vetrastarf  Ungmennfélaganna

Rætt var um hvort búið væri að setja upp tímatöflu fyrir ungmennafélögin í þróttahúsinu. Íþrótta og æskulýðsfulltrúi greindi frá því að undirbúningurinn væri í vinnslu og myndu félögin koma saman í næstu viku. Nefndarmenn töldu að fyrir næsta ár þyrfti taflan að vera komin út fyrr þar sem erfitt sé til dæmis fyrir tónlistarskóla að raða niður tímum áður en taflan hjá ´þróttafélögunum er gefin út.

Íþrótta og æskulýðsfulltrúi sagði frá því að hópur hefði haft samband við sig til þess að fá aðstöðu fyrir judóæfingar í vetur. Íþrótta og æskulýðsfulltrúa var falið að finna lausn fyrir þann hóp.

3. Önnur mál

Nefndinni barst erindi frá Sigurjóni Inga Sölvasyni varðandi aðstöðu til skíðaiðkunar hér í Snæfellsbæ. Nefndin vill þakka Sigurjóni kærlega fyrir flott erindi og var mjög jákvæð fyrir því að skoða hvaða möguleikar væru í að endurvekja skíðaiðkun hér á svæðinu. Rætt var um aðstöðuna á Fróðarheiði og tækjakost. ákveðið var að Íþrótta og æskulýðsfulltrúi myndi kanna málið betur og jafnvel leggja erindið fram til kynningar hjá Bæjarstjórn. Ákveðið var að taka málið aftur fyrir á næsta fundi þegar búið væri að skoða málið betur og athuga með tækjakost og annað.

Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 18:20

Getum við bætt efni þessarar síðu?