Íþrótta- og æskulýðsnefnd

60. fundur 05. júlí 2016 kl. 13:29 - 13:29

60. Fundur Íþrótta- og æskulýðsnefnd, haldinn í Átthagastofu Snæfellsbæjar, mánudaginn 26.mars 2012, kl. 17:00

Mættir:

Ari Bent Ómarsson.

Brynja mjöll Ólafsdóttir.

Elva Ösp Magnúsdóttir.

Snædís Hjartardóttir.

Sigrún Ólafsdóttir.

 

  • Fundarmenn byrjuðu á því að bjóða gest fundarins Ragnheiði Dröfn Benediktsdóttur velkomna. Ragnheiður hefur verið í starfskynningu hjá Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa undanfarið
  • Skíðasvæði og skíðaiðkun í Snæfellsbæ:  Rætt var um þann möguleika að endurvekja skíðaiðkun hér í Snæfellsbæ og koma upp góðu skíðasvæði. Nú hefur hvergi verið í notkun skíðasvæði fyrir almenning hér á Snæfellsnesi í vestur. Rætt var um hina ýmsu mguleika. Ákveðið var að skoða málið betur og kanna búnað og fleira næsta vetur.
  • Íþrótta- og tómstundastefna Snæfellsbæjar: Rætt um stefnuna.
  • Minnispunktar Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa: 
  • Farið var með 62 ungmenni frá Snæfellsbæ á Samfestinginn (áður Samfés). Ferðin gekk  mjög vel og voru krakkarnir bæjafélaginu til sóma eins og alltaf.
  • Búið er að bóka komu 4.árs hjúkrunarfræðinema úr Reykjavík í félagsmiðstöðina Afdrep til þess að vera með kynfræðslu fyrir 8-10. bekk þann 26.apríl nk. Fræðslan verður kynjaskipt og mun verða boðið uppá að krakkarnir riti nafnlausar spurningar á blað.
  • Haldið verður pÁskabingó í félagsmiðstöðinni afdrep þann 29.mars fyrir 7-10.bekk
  • Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fékk úthlutaðan 75.000 kr styrk frá Menningarráði Vesturlands til þess að halda tvenna tónleika fyrir ungmennin okkar. Búið er að bóka tónleika í byrjun maí. Gert er ráð fyrir að tónleikarnir verði tvískiptir þ.e 7-10.bekkur og svo framhaldsskólanemar.
  • Þrjú ungmenni úr ungmennaráði eru á leið á Ungmennaráðstefnuna "Ungt fólk og lýðræði" sem haldin er á Hvolsvelli þann 29.-31.mars.  Mjög góð og fjölbreytt dagskrá er í boði, bæði fyrirlestrar og vinnustofur. Þáttökugjald er 10.000 kr. og eru ferðir og uppihald innifalið í þeirri fjárhæð.
  • Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa barst bréf frá UMFÍ þar sem hvatt er til þess að sveitarfélög veiti íþróttafélögum gistingu í skólum sínum þegar félög eru að koma til að stunda íþróttir svo hægt sé að lágmarka kostnað. Nefndarmenn sammála um að taka þátt í þessu átaki Ungmennahreyfingarinnar að veita félögum fría gistingu í skóla  / íþróttahúsi ef aðstæður leyfa.
  • Önnur mál: Rætt var um afþreyingu fyrir ungmenni í sumar. Rætt var um hvort hægt sé að vera með skólagarða eða smíðavelli fyrir börn eins og hefur verið í nærliggjandi bæjafélögum. Rætt var um Skólahreysti og hvernig er hægt að efla áhuga ungmenna hér í Snæfellsbæ á keppninni. Gera þarf meira úr atburðinum til að auka áhugann. Tryggja þarf að stuðningsmannalið fari ávallt með keppendum til að hvetja þau áfram. Það hefur sýnt sig að það myndast mun meiri stemmning fyrir keppninni ef fleiri fara með til að hvetja sína krakka áfram. Nefndin leggur til að við næstu fjárhagsáætlun verði ákveðið fjármagn eyrnamerkt þessum málaflokki svo þáttaka okkar bæjarfélags falli ekki niður. Keppni sem þessi er þáttur í forvarnarstarfi.

 

  • Fleira ekki gert og fundi slitið 18:15

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?