Íþrótta- og æskulýðsnefnd

61. fundur 13. júlí 2016 kl. 09:28 - 09:28

 

61. Fundur Íþrótta- og æskulýðsnefndar haldin í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar þriðjudaginn 15. maí kl:17:00 Á fundinn mættu: Brynja Mjöll Ólafsdóttir Elva Ösp Magnúsdóttir June Beverly Scholtz Snædís Hjartardóttir Sigrún Ólafsdóttir

 

1.      Hátíðarhöld 17. Júní

Skipulagning fyrir hátíðarhöldin er komin á fullt skrið. Þegar er búið að bóka nokkra dagskrárliði en Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi mun vinna áfram að dagskránni á næstu vikum.

 

2.      Sund- og safnkortið / Kynning

Sund- og safnakortið er nýjung í ferðaþjónustu, sem hefur það að megin markmiði sínu að hvetja ferðamenn og fjölskyldufólk til að sækja sundlaugar og söfn víðsvegar á landinu, og auka þar með áhuga ferðamanna á mismunandi sveitarfélögum. Gera ferðamönnum og fjölskyldu fólki kleyft að sækja þessa staði og kynnast því sem sveitarfélögin hafa upp á að bjóða á hagkvæman og auðveldan hátt. Um er að ræða svipað kort og útilegukortið sem hefur verið í gangi í nokkur ár. Rætt var um það hvort Sundlaug Snæfellsbæjar eigi að vera með í þessu nýja korti. Ýmsar umræður og vangaveltur komu fram og var ákveðið að Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi myndi fá frekari upplýsingar um ýmis atriði er nefndarmönnum þóttu ekki nægilega skýr. Allt utanumhald gæti verið snúið hér í Snæfellsbæ þar sem sundlaugin er ekki búin tölvukerfi. Ekki tekin afstaða til málsins að sinni.

3.      Siðareglur Íþróttafélaga – kynning

Farið var yfir kynningu á siðareglum Íþróttafélaga og farið yfir dæmi um slíkar reglur frá Íþróttafélagi af höfuðborgarsvæðinu. Ákveðið að senda bréf á Ungmennafélögin í Snæfellsbæ þar sem mælst er til að félögin skoði að setja sér slíkar reglur.

4.      Önnur mál Félagsmiðstöðin Afdrep: Nú fer að líða að lokun félagsmiðstöðvarinnar þetta vorið.  5 – 7 .bekur mun fá að halda sitt lokakvöld þann 16. maí þar sem verður haldin hæfileikakeppni og borðaðar pitsur. Mikil tilhlökkun er hjá krökkunum fyrir kvöldinu. 8-10. Bekkur mun halda sitt lokakvöld í næstu viku. Sundlaug Snæfellsbæjar: Laga þarf skiltið á Sundlauginni. Rangar upplýsingar um opnunartíma eru á skiltinu. Mikilvægt er að þetta verði lagað fyrir sumarið. Fleira ekki gert og fundi slitið 18:00
Getum við bætt efni þessarar síðu?