Íþrótta- og æskulýðsnefnd
30. fundur Íþrótta- og æskulýðsnefndar, haldinn í íþróttahúsi Snæfellsbæjar, Ólafsvík
Þriðjudaginn 21.nóvember 2006 kl 17:00.
Mættir voru:
Brynja Mjöll Ólafsdóttir Ragnar Mar Sigrúnarson Snædís Hjartardóttir Hafdís Rán Brynjarsdóttir Sigrún Ólafsdóttir Sigurður Gíslason
Sigurður sagði að starfið gengi mjög vel, klúbbarnir komnir í gang og hann hrósaði starfsmönnunum mikið. Góð greinargerð kom frá Gunnari og Kristný um það sem búið væri verið að gera og það sem er framundan og er nefndin ánægð með þeirra vinnubrögð. 2. Opnun íþróttahúsins á laugardögum- hvernig er nýtingin? Brynja spurði Sigurð um nýtinguna á íþróttahúsinu á laugardögum og sagði hann að hún væri mjög góð. Blak og knattspyrna er í fullum gangi, svo væru eldri borgarar með tíma sem þeir nýttu mjög vel og einnig er Lýðheilsuhópurinn búinn að fá tíma fyrir alla þá sem hafa áhuga, á laugardögum kl 13 – 14. 3. UngmennaráðSigurður sagði að það sé enn verið að vinna í að móta það, stefnt er að því að það fari af stað strax eftir áramót..
Sigrún vildi lýsa ánægju sinni með gott framtak hjá foreldrafélaginu í sambandi við foreldraröltið.
Fleira ekki gjört Fundi slitið kl 17:50 Sigrún Ólafsdóttir |