Stjórn Jaðars

33. fundur 25. júlí 2016 kl. 14:28 - 14:28
  1. fundur í stjórn Jaðars mánudaginn 24. Janúar 2011 kl.16:00

 

Mættir:

Sigurður A. Guðmundsson formaður

Sigrún H. Guðmundsdóttir

Stefán J.Sigurðsson ritari

Inga J, Kristinsdóttir forstöðumaður

 

Forstöðumaður sagði frá  því að bæjarstjórn Snæfellsbæjar hafi sent umsókn um styrk til Framkvæmdasjóðs aldraðra vegna endurbóta á Dvalarheimilinu Jaðri,Ólafsvík.

Með umsókninni var send greinargerð stjórnar Jaðars,  Þar sem lögð er áhersla á að endurbótum á eldra húsnæðinu verði hraðað, en þar verða 12 rými fyrir vistmenn ásamt aðstöðu fyrir ýmsa afþreyingu,

 

Vinna er hafin við endurbætur á eldra húsnæðinu, stjórnin skoðaði framkvæmdir og forstöðumaður sagði frá þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru. Rætt var um kosnað og möguleika á fjármögnun verksins.

 

Rætt um undirbúning þorrablóts sem verður haldið föstudaginn 4. Febrúar.

 

Fundi slitið kl. 17:30

Sigurður A. Guðmundsson

Sigrún H. Guðmundsdóttir

Stefán J.Sigurðsson

Inga J. Kristinsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?