Stjórn Jaðars

32. fundur 25. júlí 2016 kl. 14:29 - 14:29
  1. fundur í stjórn Jaðars þriðjudaginn 7. Desember 2010 kl. 15.30
Mættir:

Sigurður A. Guðmundsson formaður

Sigrún H. Guðmundsdóttir

Stefán J.Sigurðsson ritari

Inga J. Kristinsdóttir

forstöðumaður Jaðars

 

Fundurinn var haldinn í nýbyggingu hjúkrunarheimilis við Jaðar.

Í upphafi var húsnæðið skoðað og notið kaffiveitinga með heimilisfólki, sem er allt flutt

í nýbygginguna.

 

Formaður setti fundinn og bauð fundarfólk velkomið til fundar í nýju húsnæði.

Heimlisfólkið er nýflutt í nýja húsnæðið og  hélt upp á tímamótin ásamt starfsfólki Jaðars

s.l. laugardag með því að bjóða gestum að skoða húsið og njóta veitinga.

 

Endurbætur eru hafnar við eldra húsnæðið, en þar verða fjórar hjónaíbúðir og fjögur einstaklingsherbergi.  Nokkrar umsóknir hafa borist um dvöl í húsnæðinu.

 

Forstöðumaður fór yfir reksturinn og mannahald, Eva Jódís Pétursdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin tímabundin í hlutastarf.

 

Fundi sliti kl. 16.30.

 

Sigurður A. Guðmundsson

Sigrún H. Guðmundsdóttir

Stefán J.Sigurðsson

Inga J. Kristinsdóttir

Getum við bætt efni þessarar síðu?