Stjórn Jaðars
Mættir:
Sigrún H. Guðmundsdóttir formaður
Stefán J. Sigurðsson ritari
Sigurður A. Guðmundsson
Inga J. Kristinsdóttir
forstöðumaður
Gestir:
Jenný Guðmundsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Metta Guðmundsdóttir
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
1. Rætt um aðbúnað vistmanna, m.a. þörf fyrir sjúkra- og iðjuþjálfun og aukna hreyfingu
2. Gestir fundarins viku af fundi.
3. Lagður fram ársreikningur Jaðars fyrir árið 2007, forstöðumaður kynnti reikninginn.
Ársreikningurinn samþykktur samhljóða.
4. Forstöðumaður tilkynnti að hún hefði sagt upp starfi sínu á Jaðri og muni hætta störfum 15. ágúst n.k.
Stjórnin þakkaði forstöðumanni fyrir vel unnin störf og óskaði henni velfarnaðar á nýjum
Starfsvettvangi.
5. Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur auglýst stöðu forstöðumanns við Dvalarheimilið Jaðar laust til umsóknar, umsóknum skal skila á bæjarskrifstofur Snæfellsbæjar fyrir 12. Júlí 2008.
6. Hjúkrunarfræðingur á Jaðri er hættur störfum og er búið að auglýsa eftir hjúkrunarfræðingi í 60 % starf, engar umsóknir hafa borist
7. Samþykkt að skrifa bæjarstjórn Snæfellsbæjar bréf og óska eftir því að endurauglýst verði staða hjúkrunarfræðings. Einnig að veitt verði heimild til að auka þjónustu við vistmenn með sjúkraþjálfun og aukinni hreyfingu.
Fleira ekki gjört, fundi slitið kl. 16.00
Sigrún H. Guðmundsdóttir
Stefán J. Sigurðsson
Sigurður A. Guðmundsson
Inga J. Kristinsdóttir