Stjórn Jaðars

34. fundur 21. júní 2016 kl. 14:47 - 14:47

34. Fundur í stjórn Jaðars þriðjudaginn 22.mars 2011, kl. 16:00

Mættir:

Sigurður A. Guðmundsson Formaður

Sigrún H. Guðmundsdóttir

Stefán Jóh. Sigurðsson Ritari

Inga J. Kristinsdóttir Forstöðumaður

 

Lögð fram tillaga að húsaleigusamningi þjónustuíbúða á Jaðri ásamt þjónustugjaldi. Tilagan samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða að senda bréf til eigenda og stjórnenda fyrirtækja  í Snæfellsbæ. Þar eru kynntar umfangsmiklar framkvæmdir við lagfæringar og endurnýjun einstaklingsherbergja og hjónaíbúða á Jaðri og breytingum lýst nánar.

Ýmsir eigendur fyrirtækja hafa lýst vilja sínum að færa stofnuninni gjafir við þessi tímamót og í umræddu bréfi er mælst til þess að þau fyrirtæki í Snæfellsbæ sem hyggjast sýna heimilinu stuðning í verki til að standa straum af kostnaðarsömum endurbótum á dvalaheimilishluta Jaðars, að þau beini gjöfum sínum í sameiginlegan fjárstyrk til Jaðars, sem nýttur verði til að standa straum af kostnaðarsömum endurbótum.

Rætt nánar um framkvæmdir sem eru nú á lokastigi.

fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:30

Getum við bætt efni þessarar síðu?