Umhverfis- og skipulagsnefnd
Árið 2007, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 12:00, hélt umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar 19. fund sinn. Fundurinn var haldinn í Röst, Hellissandi. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Sigurjón Bjarnason, Jónas Kristófersson, Bjarni Vigfússon,
Pétur Steinar Jóhannsson
og Drífa Skúladóttir.Ennfremur Svanur Tómasson og Smári Björnsson sem einnig ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
Lóðarúthlutun
1. | Letisund 1, Lóðarumsókn | Mál nr. BN070234 |
620597-2529 Breiðavík ehf, Háarifi 53 Rifi, 360 Hellissandur
Breiðavík ehf sækir um byggingarlóð við Letisund 1, Rifi fyrir ca. 450 fm stálgrindarhús.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Skipulagsmál2. | Hellissandur, Deiliskipulag íbúðarhúsa með vinnuaðstöðu við Hellisbraut | Mál nr. BN070231 |
510694-2449 Snæfellsbær, Snæfellsási 2, 360 Hellissandur
Tæknideild Snæfellsbæjar fer fram á að deiliskipulag fyrir íbúðarhús með vinnuaðstöðu við Hellisbraut verði klárað. Deiliskipulagið hefur verið auglýst. Engar athugasemdir bárust.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Byggingarl.umsókn3. | Norðurtangi 3, Klæðning | (65.4300.30) | Mál nr. BN070236 |
541298-2589 Víkurhöfn ehf, Vallholti 18, 355 Ólafsvík
Elías Róbertsson f.h. Víkurhafnar ehf óskar eftir leyfi til að klæða eignarhluta Víkurhafnar við Norðurtanga 3. Meðeigendur að Norðurtanga 3 hafa samþykkt þessa framkvæmd.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.4. | Túnbrekka 19, Klæðning og endurnýjun glugga. | (88.5301.90) | Mál nr. BN070235 |
100581-5159 Arnar Laxdal Jóhannsson, Túnbrekku 19, 355 Ólafsvík
Arnar Laxdal Jóhannsson sækir um leyfi til að klæða húseign sína að Túnbrekku 19 með báruáli og timbri. Einnig er óskað eftir leyfi til að endurnýja glugga.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið. Fyrirspurn5. | Hellisbraut 20, Breyting á húsnæði | (36.5502.00) | Mál nr. BN070230 |
200369-2389 Patrick Verlee, Holland,
Patrick Verlee og Marieke Bots óska eftir afstöðu nefndarinnar varðandi breytingar á Hellisbraut 20. Efri hæð hússins yrði breytt í íbúð og neðri hæðin yrði nýtt fyrir fyrirtæki í upplýsingaiðnaði.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið. Önnur mál6. | Álfaslóð 6, Skila inn lóð | (04.6448.00) | Mál nr. BN070240 |
060682-7479 Birgir Tryggvason, Lindarholti 2, 355 Ólafsvík
Birgir Tryggvason skilar inn frístundalóð að Álfaslóð 6, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.7. | Búðir hótel 136197,Endurnýjun rekstarleyfis | (00.0200.01) | Mál nr. BN070233 |
570269-4619 Sýslumaður Snæfellinga, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi
Sýslumaður Snæfellinga óskar eftir umsögn nefndarinnar vegna umsóknar Úlfars I. Þórðarsonar f.h Hótels Búða um endurnýjun rekstarleyfis.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.8. | Dalbraut 10,Lóðarleigusamningur | (18.0301.00) | Mál nr. BN070239 |
020650-4439 Vigfús Vigfússon, Grundarbraut 43, 355 Ólafsvík
Eigendur Dalbrautar 10 óska eftir að gefið verði út nýtt lóðarbréf í samræmi við fasteignamat ríkisins sem er 3.387 fm að stærð.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að leggja fyrir hópinn tillögu (teikningu) að lóð með sömu stærð og farið er fram á.9. | Hellissandur og Rif,Slysavarnareftirlit | Mál nr. BN070232 |
090358-5539 Hulda Skúladóttir, Helluhóli 7, 360 Hellissandur
Stjórn Helgu Bárðardóttur óskar eftir stöðu mála varðandi slysavarnareftirlit á Hellissandi og öryggismál við Rifshöfn.
Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar deildinni fyrir erindið. Varðandi öryggismál fyrir hafnir vísar nefndin á Hafnarnefnd. Það sem helst hefur verið og á að gera í umferðarmálum hjá Snæfellsbæ: Biðskyldumerkingar á Hellissandi eru flestar komnar og verða þær merkingar kláraðar fljótlega. Öryggismál á leik- og íþróttasvæði barna, botnlangamerkingar í Rifi, Hellihóli og Selhóli er á framkvæmdaáætlun Tæknideildar Snæfellsbæjar í janúar. Biðskylda í Rifi og stöðvunarskylda við þjóðveg og Selhól er í skoðun hjá Lögreglu, Vegagerð og Tæknideild Snæfellsbæjar. Til að minnka hraða í þéttbýli er í vinnslu hjá bæjarstjóra að setja upp hraðaviðvörunarskilti í Ólafsvík. Einnig er í vinnslu hönnun gatna í þéttbýli til að auka umferðaröryggi.10. | Jökulháls, Vikurnám | Mál nr. BN070237 |
710169-0559 Landbúnaðarráðuneyti, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík
Landbúnaðarráðuneytið óskar eftir umsögn Snæfellsbæjar vegna umsóknar frá Vikurvinnslunni ehf., þar sem óskað er eftir endurnýjun til 5 ára á leigusamningi um vikurtöku og vikurvinnslu á Jökulhálsi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd synjar erindinu.11. | Kirkjutún 2,Reyndarteikningar | (67.4385.00) | Mál nr. BN070238 |
560986-1309 Nýja teiknistofan ehf, Síðumúla 20, 108 Reykjavík
Sigurður Einarsson f.h. Umtak ehf óskar eftir umfjöllun nefndarinnar varðandi meðf. reyndarteikningu af Kirkjutúni 2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.12. | Sölvaslóð 12, Skila inn lóð | (86.5001.20) | Mál nr. BN070241 |
200363-5589 Guðrún Eygló Guðmundsdóttir, Þorláksgeisla 102, 113 Reykjavík
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir skilar inn lóðinni að Sölvaslóð 12, Arnarstapa.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl.
________________________________
Sigurjón Bjarnason
________________________________
Bjarni Vigfússon
________________________________
Drífa Skúladóttir
________________________________
Jónas Kristófersson
________________________________
Pétur Steinar Jóhannsson