Umhverfis- og skipulagsnefnd
Árið 2003, miðvikudaginn 4. júní kl. 16:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd 119. fund sinn.
Þessir nefndarmenn sátu fundinn:
Sævar Þórjónsson
Ómar Lúðvíksson
Reynir Rúnar Reynisson
Bjarni Vigfússon
Ólafur Guðmundsson, byggingafulltrúi
Smári Björnsson, bæjartæknifræðingur
Jón Þór Lúðsvíksson, slökkviliðsstjóri
Þetta gerðist:
Skipulagsmál
1. Klettsbúð 1: LÓÐ FYRIR EINBÝLISHÚS
180268-4219: Eggert Bjarnason, Naustabúð 15, 360 Hellissandi
Eggert Bjarnason óskar eftir lóðinni Klettsbúð 1, Hellissandi, fyrir einbýlishús.
Frestað.
2. Traðarland 3 186968: AÐALSKIPULAG/DEILISKIPULAG
Aðalskipulag/deiliskipulag fyrir tvö frístundahús í landi Traðar ásamt skilmálum.
Samþykkt til auglýsingar.
Byggingarleyfisumsóknir
3. Borgarholt 2: SÓLPALLUR
020862-7699: Sölvi Konráðsson, Borgarholti 2, 355 Ólafsvík
Sótt er um leyfi til að reisa sólpall að Borgarholti 2. Stærð 43,3 m2.
Samþykkt.
4. Forna-Fróðá 132769: GEYMSLA
080444-3549: Sigþór Guðbrandsson, Skipholti 7, 355 Ólafsvík
Sótt erum leyfi til að byggja 6m2 garðhús hjá sumarhúsinu á Fornu-Fróðá. Einnig er sótt um heimild til að byggja ca 4 m2 hænsnakofa sem staðsettur yrði bak við svonefndan hesthúshól fjarri sjónlínu frá vegi og næsta nágrenni.
Samþykkt, en skilyrt að fá mynd af hænsnakofanum og afstöðumynd af báðum húsunum.
5. Laugabrekka: BREYTT NOTKUN OG STÆKKUN
060653-5699: Þorsteinn Jónsson, Haukanesi 15, 210 GarðabærSótt er um leyfi til að breyta notkun á fjárhúsum og hlöðu á Laugabrekku, Hellnum, ásamt stækkun í samræmi við grunnplan.
Nefndin er samþykk breyttri notkun í samræmi við framlagðar frumteikningar, endanlegri afgreiðslu frestað þar til fullgerðar teikningar verða lagðar fram - þar sem kemur fram m.a. brunavarnir og aðgengi fyrir fatlaða.
6. Munaðarhóll 6: BREYTING Á BÍLSKÚR O.FL.
041159-2519: Óskar Skúlason, Munaðarhóli 6, 360 Hellissandur 291262-5389: Þóra Olsen, Munaðarhóli 6, 360 HellissandurSótt er um leyfi til að byggja skjólvegg og framlengja þak á bílskúr að Munaðarhóli 6 og endurnýja sólpall og setja niður barnahús, 2*2 m, í samræmi við skissur.
Samþykkt.
7. Vallholt 18: BÍLSKÚR
290770-4919: Elías Róbertsson, Vallholti 18, 355 ÓlafsvíkSótt er um leyfi til að byggja 55,8 m2 - 201,7 m3 bílskúr að Vallholti 18b, Ólafsvík.
Samþykkt, en gætt verði ákvæða um brunavarnir á lóðamörkum.
8. Þorgilsstaðir 132791: ENDURBYGGING ÍBÚÐARHÚSS
270226-2489: Hermann Þorgilsson, Hrísum, 355 Ólafsvík
Sótt er um leyfi til að byggja íbúðarhús að Þorgilsstöðum á grunni þess gamla sem leyft var að rífa. Teikning frá Teiknivangi. Stærð 74,3 m2 - 289,4 m3.
Samþykkt.
Fyrirspurn
9. Túnbrekka 11: FYRIRSPURN UM STÆKKUN
200565-5689: Ari Bjarnason, Túnbrekku 11, 355 Ólafsvík
Ari óskar eftir áliti byggingarnefndarum stækkanir á íbúðarhúsinu að Túnbrekku 11 í samræmi við framlögð riss.
Nefndin tekur jákvætt í erindiðen bendir á reglur um brunavarnir.
Önnur mál
10. Ennisbraut 2: GISTILEYFI
510694-2449: Snæfellsbær, Snæfellsási 2, 360 Hellissandur
Snæfellsbær óskar umsagnar nefndarinnar á erindi Hafdísar Berg um rekstur gistiheimilis að Ennisbraut 2. Nefndin hefur samþykkt breytta notkun og grendarkynning hefur farið fram og skoðun hússins.
Nefndin er samþykk erindinu þegar búið verður að gera aðgengi fyrir fatlaða inn í húsið og á snyrtingu eins og skilyrt var við fyrra erindi.
11. Hellisbraut 18a: STÆKKUN LÓÐAR
111057-2069: Jóhann Rúnar Kristinsson, Háarifi 7, Rifi, 360 Hellissandur
Jóhann óskar eftir að stækka lóðina að Hellisbraut 18a til vesturs um 2-3 metra.
Frestað og erindinu vísað til tæknideildar til nánari athugunar, m.a. vegna lóðarsamninga við nágranna.
12. Skógrækt: LAND FYRIR SKÓGRÆKT
510391-2179: Skógræktarfélag Ólafsvíkur, 355 Ólafsvík
Skógræktarfélag Ólafsvíkur óskar eftir að taka á leigu landspildu af Snæfellsbæ samkvæmt uppkasti af leigusamningi og uppdrætti sem fylgir með.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til bæjarstjórnar.
13. Sölvaslóð 10: AFTURKÖLLUN LÓÐAÚTHLUTUNAR
251159-2629: Þórunn Þórisdóttir, Veghúsum 29, 112 Reykjavík
241161-7149: Magnús Þór Jónsson, Veghúsum 29, 112 Reykjavík
Borist hefur bréf fráSveini Guðmundssyni, lögmanni, vegna lóðamála á Sölvaslóð 10, þar sem hann óskar eftir fresti vegna afturköllunar á lóðarúthlutuninni fram í 26. viku þessa árs.
Frestur er gefinn til 1. júlí 2003. Bent er á að enginn lóðaleigusamningur hefur verið gerður við Snæfellsbæ, einungis hefur lóðinni verið úthlutað.
Stöðuleyfi
14. Klifbrekka 6a: GÁMUR
131031-5059: Ríkharður Jónsson, Ólafsbraut 38, 355 Ólafsvík
Sótt er um stöðuleyfi fyrir gám vestan við hjallinn á Klifbrekku 6a.
Samþykkt.