Aðventugleði í Snæfellsbæ 5. desember

Jólaandinn mun svífa yfir Snæfellsbæ á morgun þegar þjónustuaðilar bjóða til árlegrar aðventugleði.
 
Mikið líf hefur verið á þessum degi síðustu ár og hefur skapast yndisleg hefð sem hringir inn jólin hjá mörgum þegar þjónustuaðilar bjóða upp á lengri opnunartíma, fallegar gjafir og almenna gleði hér í heimabyggð.
 
Auk þess heldur Kirkjukór Ólafsvíkur jólatónleika í Pakkhúsinu og býður upp á glögg og dass af jólum.
 
Eins og sjá má í meðfylgjandi auglýsingu er óhætt að segja að við búum við ríkulegt framboð af verslunum og þjónustuaðilum hér í sveitarfélaginu.
 
Öll hjartanlega velkomin.