Afmælishátíð og matarmarkaður að Breiðabliki

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes fagnar tíu ára afmæli og blásið er til afmælisfögnuðar í Gestastofu Snæfellsness að Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi laugardaginn 12. október frá kl. 13:00 - 17:00.

Í gestastofunni verður kynning á starfi Svæðisgarðsins og matarmarkaður Matarauðs Vesturlands. Hægt verður að kaupa alls kyns ljúfmeti beint frá býli.

Súpa og brauð í boði á meðan birgðir endast.

Öll velkomin.