Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna alþingiskosninga
07.11.2024 |
Fréttir
Kosið verður til Alþingis 30. nóvember 2024. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 7. nóvember 2024 hér í Snæfellsbæ.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á opnunartíma:
- Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 15:30.
- Föstudaga frá kl. 09:00 til 12:00 og 13:00 til 14:00.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Á vef Þjóðskrár er hægt að fletta upp hvar kjósandi á að kjósa.