Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakosninga hefst 9. júní í Snæfellsbæ
02.06.2020 |
Fréttir
Kjör forsta Íslands fer fram laugardaginn 27. júní 2020.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 9. júní hér í Snæfellsbæ og stendur til kjördags.
Kosið er utankjörfundar á opnunartíma skrifstofu sýslumanns í Ráðhúsi Snæfellsbæjar við Klettsbúð 4 á Hellissandi. Opið er virka daga frá 9:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00.
Þeim sem kjósa utankjörfundar er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi fer fram á eftirfarandi stöðum:
Frá 25. maí 2020:
- Akranesi - skrifstofu sýslumanns, Stillholti 16-18, virka daga kl. 10.00 til 15.00
- Borgarnesi - skrifstofu sýslumanns, Bjarnarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00
- Stykkishólmi - skrifstofu sýslumanns, Borgarbraut 2, virka daga kl. 10.00 til 15.00
Frá 9. júní 2020:
- Búðardal - skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11, á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 09.30 til 13.00
- Eyja- og Miklaholtshreppi - skrifstofu hreppsstjóra, Þverá, virka daga kl. 12.00 til 13.00
- Grundarfirði – skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, Borgarbraut 16, virka daga kl. 10.00 til 14.00
- Snæfellsbær - skrifstofu sýslumanns, Klettsbúð 4, virka daga kl. 09.00 til 12.00 og 13.00 til 15.00