Auglýst eftir leikskólakennara/leiðbeinanda á Kríuból

Leikskólakennari á Kríuból

Leikskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausa stöðu leikskólakennara á Kríubóli. Vinnutími er frá kl. 8:00 – 16:00.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
  • Leikskólakennararéttindi

Fáist ekki menntaður leikskólakennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til grein aað ráða leiðbeinendur tímabundið.

Viðkomandi þarf að búa yfir:

  • Góðri íslenskukunnáttu
  • Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
  • Góðum samskiptahæfileikum
  • Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
  • Góðri færni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
  • Hreinu sakarvottorði

Leikskólastjóri áskilur sér rétt að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir, leikskólastjóri, og Linda Rut Svansdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 433 – 6926 á milli kl. 9:00 – 14:00 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is.