Auglýst eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð Vesturlands
26.08.2019 |
Fréttir
Nú er opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna.
Á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (sjá hér) er að finna reglur og viðmið varðandi styrkveitingar. Umsóknarformið er á heimasíðunni og notaður er Íslykill til innskráningar. Nánari upplýsingar hjá SSV í síma 433 2310 eða með því að senda póst á netfangið uppbyggingarsjodur@ssv.is. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út á miðnætti mánudaginn 23. september 2019.