Auglýst eftir umsóknum um búsetu í þjónustuíbúðakjarna í Ólafsvík

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir umsóknum um búsetu í nýjum þjónustuíbúðakjarna fólks með fötlun að Ólafsbraut 62-64 í Ólafsvík.

Um er að ræða fimm einstaklingsíbúðir með stuðningsþjónustu FSS. Stuðningsþjónusta felur í sér aðstoð/leiðsögn til sjálfstæðrar búsetu í eigin íbúð.

Umsækjendur þurfa að uppfylla neðangreind skilyrði:

  • Eigi lögheimili á Snæfellsnesi
  • Séu 18 ára eða eldri.
  • Hafi verið virkur og eða verður notandi dagþjónustu og hæfingarstöðvar FSS.
  • Hafi metna þjónustuþörf í 6. flokki SIS eða hærra.
  • Staðfest fötlunargreining Greiningar- og ráðgjafarstöðvar liggi fyrir.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2021. Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og kynningarefni um þjónustuíbúðakjarnann má finna á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Umsóknir berist Jóni Hauki Hilmarssyni, ráðgjafarþroskaþjálfa, á skrifstofu Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Hellissandi eða á netfangið jonhaukur@fssf.is.

Ekki liggur fyrir hvenær starfsemi getur hafist.

Nánari upplýsingar: Umsóknareyðublað Úthlutunarreglur Myndakynning á kjarnanum