Auglýst eftir umsóknum um örstyrki til menningarverkefna
08.06.2021 |
Fréttir
Viltu gera eitthvað spennandi í sumar?
Menningarnefnd Snæfellsbæjar auglýsir örstyrki til menningarverkefna í Snæfellsbæ sumarið 2021.
Veittir verða fjórir styrkir kr. 40.000,- hver til tónleikahalds, listasýninga, útgáfu eða annarra verkefna sem styðja við lista- og menningarstarf í Snæfellsbæ.
Umsóknir ásamt greinagerð um verkefnið sendist á menningarnefnd@snb.is fyrir 17.júní n.k.Styrkir verða afhentir 20.júní.