Auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024
02.10.2023 |
Fréttir
Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar fyrir árið 2024 og hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki.
Þeir aðilar sem vilja koma með styrkumsókn er varðar næsta fjárhagsár Snæfellsbæjar eru hvattir til að skila þeim á bæjarskrifstofuna til bæjarritara fyrir 1. nóvember 2023.
Þau félagasamtök sem fengu styrki á árinu 2023 þurfa að senda inn ársreikning með áframhaldandi styrkbeiðni.
Athugið: Engir styrkir fást greiddir nema um þá sér sótt og bæjarstjórn samþykki þá.