Auglýst útboð vegna framkvæmda við hafnir Snæfellsbæjar
01.07.2020 |
Fréttir
Hafnarsjóður Snæfellsbæjar hefur auglýst tvö útboð vegna framkvæmda við hafnirnar í Ólafsvík og Rifi. Um er að ræða dýpkunarframkvæmdir annars vegar og efnisútboð á stálþili hins vegar.
DýpkunarframkvæmdirDýpkunarframkvæmdir felast í dýpkun á lausu efni í Ólafsvíkurhöfn og Rifshöfn.
Helstu magntölur:
- Dýpkun í Ólafsvíkurhöfn alls um 50.000 m3.
- Dýpkun í Rifshöfn alls um 100.000 m3.
Tilboð verða opnuð 7. júlí næstkomandi. Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2020.
Nánar á vefsíðu Vegagerðarinnar. Efnisútboð á stálþiliHafnir Snæfellsbæjar hafa boðið út efniskaup vegna stálþils við Norðurtangabryggju í Ólafsvík. Sameiginlegt útboð með Reykjaneshöfn og Höfnum Ísafjarðarbæjar.
Tilboð verða opnuð 20. júlí. Gert er ráð fyrir því að reka stálþil niður árið 2021.
Nánar á vefsíðu Ríkiskaupa.