Auglýst útboð vegna lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík
23.05.2019 |
Fréttir
Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboði vegna framkvæmda við við höfnina í Ólafsvík.
Um er að ræða lengingu Norðurgarðs í Ólafsvík um 80 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og kjarna samtals um 36.000 m3
- Upptekt og endurröðun um 2.000 m3.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. desember 2019.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), og á hafnarskrifstofu Snæfellsbæjar, Norðurtanga 5 í Ólafsvík, frá og með mánudeginum 20. maí 2019.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
Ljósmynd: Sindri Snær Matthíasson