Aukaleikarar úr samfélaginu óskast í kvikmyndina Woman at sea
14.05.2021 |
Fréttir
Í byrjun næsta mánaðar hefjast upptökur á kvikmyndinni Woman at sea í Ólafsvík og nágrenni og munu standa yfir í júní og júlí nk. Framleiðendur myndarinnar óska eftir aukaleikurum úr samfélaginu og hvetjum við áhugasama til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.
Tilkynning frá framleiðendum:
Við viljum bjóða öllum þeim sem hafa áhuga á að vera á skrá hjá okkur sem aukaleikarar í tökum á myndinni WOMAN AT SEA, að koma í myndatöku og skrásetningu:
Miðvikudaginn 19. maí á milli 18:00 - 20:30 á Hótel Ólafsvík.
Við leitum að einstaklingum á aldrinum 18-70 ára og hlutverkin sem við komum til með að raða í eru meðal annars; sjómenn, gestir á bar, barþjónar, gangandi vegfarendur og fleira.
Við biðjum ykkur að koma sem minnst förðuð og í eins hlutlausum fötum og þið eigið til, helst með engum sjáanlegum merkjum eða röndum á.
Tökutímabilið er 1.júní - 2.júlí.
Fyrirfram þakkir, við hlökkum til að sjá ykkur!
Dominique Gyða SigrúnardóttirCasting Director
Woman at Sea
Nánar um myndina: