Aukinn opnunartími í upplýsingamiðstöðinni
03.04.2019 |
Fréttir
Snæfellsbær hefur ákveðið að mæta eftirspurn og bæta þjónustu við gesti með rýmri opnunartíma upplýsingamiðstöðvar í Ólafsvík. Nýr opnunartími tekur nú þegar gildi og verður opið sem hér segir:
3. apríl - 15. maíOpið alla virka daga frá 10:00 - 16:00.
15. maí - 31. ágústOpið alla virka daga frá 8:00 - 19:00. Opið um helgar frá 9:00 - 17:00.
Upplýsingamiðstöðin er staðsett í Átthagastofu Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Síðastliðið sumar sóttu þangað á um 7.000 ferðamenn í leit að upplýsingum, leiðbeiningum og öðrum ráðum og standa vonir til að með auknum opnunartíma geti upplýsingamiðstöðin stutt betur við þau fyrirtæki sem eru í ferðaþjónustu í Snæfellsbæ.