Bæjarráð mótmælir skerðingu til Jöfnunarsjóðs
11.04.2019 |
Fréttir
Bæjarráð Snæfellsbæjar mótmælir harðlega þeirri einhliða ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um 3,3 milljarða króna á næstu tveimur árum. Í málefnum sem þessum er nauðsynlegt að samráð sé haft milli þeirra aðila sem að málefninu koma. Einhliða ákvörðun sem þessi grefur undan annars ágætu samstarfi ríkis og sveitarfélaga og á sér ekki fordæmi í samskiptum þessara tveggja stjórnsýslustiga.
Skerðing á tekjum jöfnunarsjóðs hefur gífurleg áhrif á sjálfsákvörðunarrétt og fjárhagslegt sjálfstæði sveitarfélaga. Hjá Snæfellsbæ einum og sér, mun þessi ákvörðun skerða tekjur sveitarfélagsins um tæplega 50 milljónir á því tímabili sem um ræðir.
Bæjarráð Snæfellsbæjar tekur heilshugar undir með stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og krefst þess að þessi einhliða ákvörðun verðir dregin til baka og viðræðum verði komið á milli aðila sem myndi stuðla að ásættanlegri lausn málsins.