Bókun bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar árið 2025
Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar, A- og B-hluta stofnana, fyrir árið 2025 var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi í gær, fimmtudaginn 5. desember 2024. Bæjarstjórn lagði fram eftirfarandi bókun.
Bókun bæjarstjórnar:
“Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur í sameiningu unnið að gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar fyrir árið 2025. Samstarf bæjarstjórnar hefur verið gott í þessari vinnu og samstaða verið um breytingar á gjaldskrám, styrkveitingar og framkvæmdaliði fyrir árið 2025.
Verðbólga ársins 2024 fór örlítið lækkandi, en þó telur bæjarstjórn að ákveðnar gjaldskrárhækkanir séu samt sem áður nauðsynlegar til að vinna upp hluta af verðbólgu síðustu ára þó ekki sé það gert að fullu. Munu gjaldskrár Snæfellsbæjar því ekki hækka nema um 3-7% á árinu 2025.
Töluverðar breytingar urðu á árinu 2024 varðandi sorpmál í Snæfellsbæ og tók gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingargjalda mið af því. Kostnaður vegna sorpmála í Snæfellsbæ hækkaði vegna krafna um aukna flokkun heim við hús. Lög og reglugerðir gera ráð fyrir því að allur kostnaður vegna sorpmála falli á notanda og því þurfti bæjarstjórn að hækka gjaldskrá vegna sorpmála töluvert á árinu 2024. Nú er komin reynsla á nýtt kerfi og ljóst að ekki þarf að hækka sorpgjaldskrá nema um 3,5% til að mæta auknum kostnaði. Það er undir verðlagsþróun sem er ánægjulegt.
Gjaldskrá fasteignagjalda tekur engum breytingum milli ára. Breytingar voru gerðar á álagningarprósentu vatns og holræsa í gjaldskrá fyrir árið 2023 og halda þær breytingar sér á árinu 2025. Sú breyting varð jafnframt á gjaldskrá fasteignagjalda árið 2024 að gjalddögum fjölgað úr 8 í 10 og verða þeir jafnmargir á árinu 2025, þ.e. frá 1. febrúar til 1. nóvember.
Afsláttur fasteignaskatts til elli- og örorkulífeyrisþega hækkar, ásamt viðmiðunarmörkum tekna, sem nemur launavísitölu ársins. Afslátturinn er áfram tekjutengdur og miðast við tekjuárið 2023, en 100% afsláttur hækkar úr 140.000.- í 150.000.-.
Útsvarsprósenta í Snæfellsbæ verður óbreytt á milli ára eða 14,97%.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að viðhalda þeirri góðu þjónustu sem veitt er í sveitarfélaginu og að henni verði hlúð eins og kostur er. Styrkir til félagasamtaka á árinu 2025 verða um 55,9 milljónir.
Snæfellsbær mun áfram bjóða upp á frístundastyrk til tómstundastarfs ungmenna og á árinu 2025 mun sá styrkur hækka úr kr. 33.000.- á barn í kr. 35.000.-, og fylgir hann launavísitölu.
Svigrúm til framkvæmda er ágætt. Áfram er gert er ráð fyrir því að stór hluti framkvæmda ársins 2025 verði í viðhaldsframkvæmdum á húsnæði bæjarins, en jafnframt er gert ráð fyrir framkvæmdum á gatnakerfi bæjarins. Gert er ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir við endurbætur á Vallholtinu í Ólafsvík og Naustabúð á Hellissandi, jafnframt því að farið verður í malbikunarframkvæmdir. Samtals er gert ráð fyrir tæpum 110 milljónum í viðhalds- og framkvæmdaverkefni á stofnunum bæjarins, þar sem stærstu einstöku verkefnin verða viðgerðir á þaki ráðhússins á Hellissandi og viðgerðum á Röstinni, ásamt öðrum smærri viðhalds- og framkvæmdarverkefnum. Stærsta einstaka fjárfesting ársins 2025 verða hins vegar gatnaframkvæmdir.
Samtals er gert ráð fyrir að fjárfestingar ársins verði rúmar 690,5 milljónir króna, þar af um 372 milljónir hjá bæjarsjóði Snæfellsbæjar og rúmar 318,5 milljónir hjá Hafnarsjóði.
Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar er ágæt. Ekki hefur verið þörf á lántöku á undanförnum árum og á árinu 2025 er ekki gert ráð fyrir að taka þurfi ný lán, þrátt fyrir miklar fjárfestingar. Þetta þýðir, að geta sveitarfélagsins til fjárfestinga eykst ár frá ári þar sem minna af fjármunum fer í afborganir af lánum og vexti, sem er afar jákvætt.
Fjárhagsáætlun ársins 2025 gerir ráð fyrir að skila rekstrarafgangi upp á rúmar 85 milljónir hjá A-hluta sjóðum, en um 154 milljónum hjá samanteknum A- og B-hluta sjóðum. Það þýðir að reksturinn gefur ákveðið svigrúm til fjárfestinga og því þarf ekki að fjármagna fjárfestingar ársins með lántöku. Skuldahlutfall Snæfellsbæjar í ársreikningi 2023 var 69% hjá A-hluta og 58,14% hjá samanteknum reikningi A- og B-hluta, en ef notað er skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, þá fer prósentan niður í 47,83% hjá A-hluta og 37,05% fyrir samstæðuna. Þar sem engin lán voru tekin á árinu 2024 er gert ráð fyrir að skuldahlutfall Snæfellsbæjar verði enn lægra í árslok 2024 og jafnframt er gert ráð fyrir að það lækki enn frekar á árinu 2025 þar sem ekki er gert ráð fyrir neinni lántöku. Rétt er að taka fram að skv. sveitarstjórnarlögum má skuldahlutfall sveitarfélaga ekki fara yfir 150% og telst því Snæfellsbær mjög vel statt sveitarfélag.
Hafnarsjóður Snæfellsbæjar er vel rekinn og verða miklar framkvæmdir á hans vegum árið 2025 eins og á undanförnum árum, , eða um 318,5 milljónir króna. Hafnarsjóður er fjárhagslega vel stæður og skuldar engin langtímalán. Ekki er gert ráð fyrir neinum lántökum hjá Hafnarsjóði á árinu 2025.
Rekstur Snæfellsbæjar hefur verið með ágætum. Langtímakjarasamningar hafa verið gerðir við mörg starfsmannafélög á árinu 2024, en ljóst er þó að kjarasamningar við grunnskóla- og leikskólakennara eru lausir, sem gerir það að verkum að rennt er blint í sjóinn með áætlun þeirra launa fyrir árið 2025. Rekstur stofnana hefur gengið mjög vel á árinu 2024 og er að miklu leyti því að þakka hversu gott samstarf hefur verið við forstöðumenn og starfsfólk Snæfellsbæjar.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar treystir á að samstarfið verði áfram farsælt, því einungis þannig verður hægt að ná fram góðum rekstri og veita góða þjónustu hjá sveitarfélaginu.