Breyttur opnunartími í Ráðhúsi Snæfellsbæjar

Til samræmis við ákvæði kjarasamninga opinberra starfsmanna þar sem samið hefur verið um 36 stunda vinnuviku, verður breyting á opnunartíma í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á föstudögum.
 
Frá og með 1. nóvember 2024 verður opið frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 14:00 á föstudögum. Opnunartími er óbreyttur aðra virka daga.