Dansnámskeið á barnamenningarhátíð Vesturlands

Dansnámskeið fyrir 6 – 16 ára í íþróttahúsinu í Ólafsvík frá kl. 10 – 16, sunnudaginn 11. september.

Allir eru velkomnir sama hvort þeir hafi æft dans áður eða ekki. Dansgleði og skemmtun verður sett í fyrirrúm ásamt því að nemendur fá að kynnast undirstöðu tækni í jazzballett, nútímadansi og skapandi dansi. 

Dagskrá:

Hópur 1 (11 ára og yngri)
  • 10:00 – 11:15 Tæknitími og dans
  • 11:15 -11:30  Nestispása fyrir nemendur
  • 11:30 -12:45 Dans, leiklist og skapandi tími
Hópur 2 (12 ára og eldri)
  • 13:00- 14:15 Tæknitími og dans
  • 14:15 – 14:30 nestispása fyrir nemendur
  • 14:30- 16:00 Dans, leiklist og skapandi tími
Um kennarann

Þórunn Ylfa er danskennari og dansari. Hún hlaut BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og stundar nú meistaranám í listkennslufræðum við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Þórunn Ylfa býr yfir mikilli reynslu í sínu fagi en hún hefur starfað sem danskennari síðustu 12 ár innan listdanskólanna í Reykjavík og hefur þar kennt nemendum á aldrinum 6 – 21 ára nútímadans, ballett, spuna, kóreógrafíu og jazzballett. 

Námskeiðið er hluti af Barnamenningarhátíð Vesturlands 2022 og er ókeypis fyrir þátttakendur. Skráning á námskeiðið í netfanginu thorunnylfa@gmail.com.