Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar
27.02.2024 |
Fréttir, Laus störf
Dvalar-og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar. Leitað er að einstaklingum í eftirfarandi störf:
- Sjúkraliðar og ófaglært fólk í almenna aðhlynningu
- Ræstingar og þvottahús
- Matráð og aðstoð í eldhús
- Hjúkrunarfræðing og sjúkraliða með umsjón með hjúkrun-og lyfjamál.
Á Jaðri er starfsumhverfi gefandi og starfsandi góður. Leitast er eftir jákvæðu starfsfólki sem hefur áhuga á samskiptum og ummönnun aldraðra.
Umsóknarfrestur er til 25. mars 2024.
Upplýsingar veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður Jaðars, í síma 433-6933 eða á netfanginu sigrunerla@snb.is.
Sótt er um störfin á ráðningarvef Snæfellsbæjar hér á heimasíðu sveitarfélagsins.