Einstakur farandmatarmarkaður á Vesturlandi um helgina

Matarmarkaður heim í hérað. Matarframleiðendur á Vesturlandi verða á ferðinni um Vesturland helgina 13. og 14. nóvember og halda einstakan farandmatarmarkað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Bílalestin verður í Snæfellsbæ laugardaginn 13. nóvember.

Í samstarfi við matarframleiðendur á Vesturlandi verður haldin farandmatarmarkaður helgina 13. og 14. nóvember 2021 í stað hefðbundins matarmarkaðs.

Matarhátíð sem halda átti á Hvanneyri næstkomandi laugardag hefur verið frestað vegna fjölda smita í samfélaginu. Hátíðin verður haldin síðar. Þess í stað verður lagt land undir fót og farið með bílalest hlaðna varningi framleiðenda um landshlutann. Þannig er farið með markaðinn heim í hérað til fólksins í stað hópamyndunar á einum stað.

Bílalestin byrjar í Snæfellsbæ og verður við Sjóminjasafnið á Hellissandi og Átthagastofu í Ólafsvík fyrir hádegi á laugardaginn. 

Eru íbúar hvattir til að taka vel á móti matarlestinni og nýta sér heimsóknina með því að bæta kræsingum frá Vesturlandi í búrið og kistuna fyrir hátíðina sem senn gengur í garð.

Nánari upplýsingar um viðburðinn og framleiðendur á vefsíðu Matarauðs Vesturlands. Laugardagur, 13. nóvember 10:00 - 10:30 Hellissandur - Planið við Sjóminjasafnið. 11:00 - 12:00 Ólafsvík - Planið við Átthagastofu.

13:00 - 14:00 Grundarfjörður

15:00 - 16:00 Stykkishólmur

17:00 - 17:30 Breiðablik

Sunnudagur, 14. nóvember

10:00 - 11:00 Búðardalur

12:30 - 13:30 Hvanneyri

14:00 - 15:00 Borgarnes

15:30 - 16:00 Laxárbakki

16:30 - 18:00 Akranes