Félags- og skólaþjónusta óskar eftir að ráða félagsráðgjafa
08.10.2024 |
Fréttir
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir að ráða félagsráðgjafa.
Um er að ræða 80 -100% stöðugildi, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón með málaflokki fatlaðs fólks
- Þverfagleg teymisvinna
- Barnavernd
- Almenn félagsráðgjöf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi
- Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun skv. kjarasamningum félagsráðgjafa
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í síma 430-7800 eða ingveldur@fssf.is
Skriflegar umsóknir þar sem fram kemur menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum umsagnaraðila berist skrifstofu FSS, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á netfangið ingveldur@fssf.is
Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðunni www.fssf.is
Umsóknarfrestur er til 20.október 2024.