Fjarfundur SSV um kolefnisspor Vesturlands 26. maí

SSV boðar til fundar á Teams miðvikudaginn 26. maí kl. 09:00-10:00.

Á fundinum mun Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur fara yfir helstu niðurstöður úr skýrslu sem hann og fyrirtæki hans UMÍS hafa unnið fyrir Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi um Kolefnisspor Vesturlands. Skýrslan kom út fyrr í þessum mánuði og í henni koma fram mögulegar aðgerðir til að minnka kolefnissporið.

ATH: Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn til að fá fundarhlekk. Skráningu lýkur 25. maí kl. 16:00.

Viðhengi: Kolefnisspor Vesturlands: skýrsla Skráning á fund