Fjarkynning á menningarstyrkjum úr Uppbyggingarsjóði

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands og hægt er að sækja um styrki til menningarverkefna.

Í tilefni þess stendur menningarfulltrúi Vesturlands hjá SSV fyrir fjarkynningu um Uppbyggingarsjóð og menningarverkefni, hvernig á að bera sig að og svarar spurningum þátttakenda á Facebook síðu SSV.

Jafnframt er hægt að bóka viðtal við menningarfulltrúa og fá ráðgjöf vegna menningarverkefna en að sama skapi er hægt að fá ráðgjöf vegna atvinnu- og nýsköpunarverkefna hjá atvinnuráðgjöfum SSV. Nánari upplýsingar um það er að finna á vefsíðu SSV.

Minnt er á að skilafrestur umsókna er 17. nóvember n.k.

Fjarkynningin verður haldin miðvikudaginn 28. október kl. 17:30, og verður fjarkynningin aðgengileg á síðunni að streymi loknu. Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook. Ljósmynd: Valdís Óskarsdóttir með meistaraspjall á kvikmyndahátíðinni Northern Wave International Film Festival í Frystiklefanum árið 2018. Mynd fengin á vefsíðu Northern Wave.