Fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf hjá Snæfellsbæ

Snæfellsbær býður einstaklingum 18 ára og eldri upp á fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar.

Leitað er að einstaklingum til að starfa við fjölbreytt og uppbyggileg störf sem samanstanda hvort tveggja af almennum verkefnum Áhaldahúss Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og vera reiðubúnir að starfa við áðurtalin störf á þriggja mánaða tímabili, eða frá 15. maí 2023.

Sumarvinna

  • Um er að ræða 100% störf í þrjá mánuði, frá 15. maí 2023.
  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
  • Umsækjendur þurfa að vera færir um að stýra vinnuskólahópi og hafa áhuga á að vinna með og fræða unglinga.
  • Umsækjendur þurfa að vera duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
  • Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.

Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2023. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum. Umsóknir berast í gegnum nýja þjónustugátt Snæfellsbæjar. ATH: Opnað verður fyrir umsóknir í vinnuskóla Snæfellsbæjar um miðjan apríl.