Forvarnardagurinn 2020

Miðvikudaginn 7. október 2020 verður Forvarnardagurinn haldinn í 15 sinn í grunnskólum landsins og í tíunda sinn í framhaldsskólum.

Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands. Aðrir samstarfsaðilar að Forvarnardeginum eru Embætti landlæknis, sem sér um verkefnisstjórn dagsins, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Samfés, Heimili og skóli – landsamtök foreldra, Ungmennafélag Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátar, Rannsóknir og greining og SAFF – Samstarf félagasamtaka í forvörnum.

Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti í því sem næst öllum grunnskólum landsins og er beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk og á 1. ári í framhaldsskólum. Á Forvarnardaginn ræða nemendur um hugmyndir sínar og tillögur um samverustundir með fjölskyldu og æskulýðs- og íþróttastarf, en þetta eru á meðal verndandi þátta gegn áfengi- og vímuefnum.

Markmið Forvarnardagsins er að vekja athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki. Á heimasíðu Forvarnardagsins er meðal annars að finna fróðleik og myndbönd um forvarnir www.forvarnardagur.is Nánar: Graf sem sýnir þróun á notkun vímuefna meðal 10. bekkinga á Íslandi 1998-2020 Hvað virkar í tóbaks-, áfengis- og vímuforvörnum í skólum? Staðreyndablað um forvarnir í grunnskólum á vef Embættis landlæknis