Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 2022
30.03.2022 |
Fréttir
Auglýsing frá yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar
Framboðsfrestur vegna sveitarsjórnarkosninga, sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, rennur út föstudaginn 8. apríl 2022 kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag milli kl. 11:00 og 12:00 í Átthagastofu í Ólafsvík.
Nánari upplýsingar um hvernig beri að ganga frá framboðslista til kjörstjórnar er að finna á vefslóðinni kosning.is.
F.h. yfirkjörstjórnar Snæfellsbæjar
Hjálmar Kristjánsson