Framkvæmdastjóri óskast hjá HSH og Snæfellsnessamstarfinu

Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu og Snæfellsnessamstarfið auglýsir eftir framkvæmdastjóra í hlutastarf.  Leitað er að metnaðarfullum, jákvæðum og áhugasömum einstaklingi sem er tilbúinn að taka virkan þátt í starfsemi og þróun félagsins.  

Hæfniskröfur:
  • Áhugasamur um íþrótta- og æskulýðsstarf
  • Stjórnunarreynsla æskileg
  • Tölvufærni æskileg
  • Samskiptafærni, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veita: Laufey Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri HSH, í síma 847 - 0830 og netfang hsh@hsh.is. Freydís Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Snæfellsnessamstarfsins, í síma 824 - 066 og netfang freydis@fsn.is

Umsóknir skal senda á netfangið: kiddimalla@simnet.is.

Umsóknarfrestur er til 11. september 2019. Mynd af 3. fl kvenna fengin af Facebook-síðu UMF Víkings/Reynis.