Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar - fundaröð

Framtíðarmöguleikar Breiðafjarðar. Leit að jafnvægi milli verndar og nýtingar.

Upplýsinga- og umræðufundir á þremur stöðum við Breiðafjörð:

  • Mánudaginn 11. mars, kl. 17:00 - 19:30 á Fosshóteli í Stykkishólmi
  • Mánudaginn 18. mars , kl. 17:00 - 19:30 á Dalahóteli, Laugum í Sælingsdal
  • Þriðjudaginn 19. mars, kl. 17:00 - 19:30 í Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd

Kynnt verður verkefni, sem hófst árið 2022 um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar með tilliti til byggðaþróunar og sjálfbærrar nýtingar.
Markmið fundarins er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsinga, en hann mun síðan gera tillögur til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Dagskrá:

  • Inngangur og stöðugreining: Sigríður Finsen, formaður stýrihóps
  • Hagrænt virði Breiðafjarðar: Vífill Karlsson, hagfræðingur hjá SSV
  • Sviðsmyndagreining KPMG: Aðalsteinn Óskarsson, Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Páll S. Brynjarsson, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi
  • Drög að tillögum stýrihóps kynnt
  • Umræður í litlum hópum
  • Samantekt niðurstaðna

Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Fundaumsjón: Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI.

Hægt er að nálgast ítarefni í frétt á vefsíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.