Frístundabyggð á Arnarstapa, lýsing og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar deiliskipulags

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Snæfellsbæjar samþykkti lýsingu og matslýsingu á fundi sínum þann 3. júlí 2024 fyrir breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar F-4 og F-5 á Arnarstapa skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð er fram lýsing og matslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar deiliskipulags á frístundasvæðum F-4 og F-5 á Arnarstapa. Í deiliskipulagi verði gert ráð fyrir að heildar byggingarmagn á lóð verði að hámarki 140 fm.

Hægt er að skoða lýsinguna og matslýsinguna á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmeri: 889/2024.

Umsagnaraðilum og þeim sem eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir og/eða umsagnir vegna lýsingar fyrirhugaðs deiliskipulags frá 11. júlí 2024 til og með 1. ágúst 2024. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast inn á www.skipulagsgatt.is á málsnúmer: 889/2024.

Skipulagsfulltrúi Snæfellsbæjar