Fyrirlestur á vegum KVAN og Grunnskóla Snæfellsbæjar um samskipti og einelti

Þriðjudaginn 8. okt. stendur Grunnskóli Snæfellsbæjar og foreldrafélögin fyrir fyrirlestri um samskipti og einelti. Vanda Sigurgeirsdóttir frá KVAN verður þar með erindi.

Fundurinn verður í Klifi kl. 17:30.

Málefnið er brýnt og því mikilvægt að það mæti að minnsta kosti einn forsjáraðili barns á fundinn.