Fyrri umræða um ársreikning Snæfellsbæjar 2018

Fimmtudaginn 11. apríl 2019 fór fram fyrri umræða í bæjarstjórn Snæfellsbæjar um ársreikning bæjarfélagsins fyrir árið 2018.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn. Áformað er að ársreikningurinn verði afgreiddur við síðari umræðu í bæjarstjórn þann 9. maí næstkomandi.

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaða töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 125,3 millj. króna í samantektum rekstrarreiknina A- og B-hluta.

Segja má að rekstur Snæfellsbæjar hafi verið nánast á pari við fjárhagsáætlun og athygli vekur að allar stofnanir Snæfellsbæjar skila rekstri á eða undir áætlun, sem er mjög ánægjulegt og eiga forstöðumenn hrós skilið fyrir árangurinn.  Hér má sjá helstu lykiltölur úr fyrri umræðu: Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 2.511,3 millj. króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 2.280,3 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um 1.995,8 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.806,9 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta var jákvæð um 125,3 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir kvæðri afkomu upp á 22,9 millj. króna. Rekstrarafkoman varð því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 102,4 millj. króna.  Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 51,5 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri afkomu upp á 4,7 millj. króna. Afkoma A-hluta varð því betri sem nemur 56,2 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.507,1 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé A-hluta 2.672,1 millj. króna.  Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 1.228,7 milljónum króna en starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 142 stöðugildum í árslok.  Veltufé frá rekstri var 259 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,55.  Handbært frá rekstri var 58,2 millj. króna.  Heildareignir bæjarsjóðs námu um 4.212,6 millj. króna og heildareignir sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 5.448,7 millj. króna í árslok 2018. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.540,4 millj. króna og í samanteknum ársreikningi um 1.941,6 millj. króna, og hækkuðu þar með milli ára um 180,7 milljónir.    Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.672,1 millj. króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam um 3.507,1 millj. króna í árslok 2018.  Eiginfjárhlutfall er 63,43 % á á árinu 2018 en var 65,89% árið áður.  Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 369 milljónir í varanlegum rekstrarfjármunum og tók ný lán á árinu 2018 upp á 328,5 milljónir.  Greidd voru niður lán að fjárhæð 156,6 milljónir.  Rétt er að taka það fram að stærstur hluti þessarar lántöku, eða kr. 178.502.037.- var tekinn vegna uppgreiðslu á samningi milli ríkissjóðs og Snæfellsbæjar um uppgjör lífeyrisskuldbindinga í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.  Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 70,41% hjá sjóðum A-hluta, en var 62,95% árið 2017, og 71,48% í samanteknum ársreikningi en var 69,49% árið 2018.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta hlutfall ekki að vera hærra en 150%. Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verður því að teljast afar góð. Til baka í yfirlit