Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða
09.10.2024 |
Fréttir
Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir skólaliða við starfsstöðina í Ólafsvík, 100% stöðugildi, frá 28. október 2024.
Starfssvið skólaliða:
- Þrif á skólahúsnæði
- Gæsla í frímínútum og matartímum
- Leiðbeina nemendum í leik og starfi
- Ýmis önnur verkefni sem falla til hverju sinni
Menntun, reynsla og hæfni:
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð kunnátta í íslensku er skilyrði
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 21. október.
Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason skólastjóri í síma 894 9903.
Sótt er um starfið á ráðningarvef Snæfellsbæjar.