Grunnskóli Snæfellsbæjar óskar eftir kennurum fyrir skólaárið 2021-2022

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður kennara fyrir skólaárið 2021 - 2022.

Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með um 230 nemendur. Starfsstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans - gsnb.is. Auglýst er eftir:
  • Umsjónarkennara í 1. - 7. bekk.
  • Kennara í heimilisfræði, 50% stöðugildi.
  • Tímabundna stöðu íþróttakennara í eitt ár, 50% stöðugildi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Leyfisbréf.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
  • Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2021. Umsóknir sendist til skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar, Ennisbraut 11, 355 Snæfellsbær eða á netfangið hilmara@gsnb.is. Í umsókn skal koma fram upplýsingar um menntun, réttindi og starfsreynslu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Snæfellsbæjar eru allir, óháð kyni, hvattir til að sækja um störfin.

Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894-9903 eða hilmara@gsnb.is.