Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur fimmtudaginn 22. ágúst

Grunnskóli Snæfellsbæjar verður settur fimmtudaginn 22. ágúst.

Skólasetning fer fram á sal viðkomandi starfsstöðvar og að því loknu hitta nemendur umsjónarkennara sína.

Nemendur mæta:

  • Kl. 10:00 í 5.-7. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi kl. 9:40).
  • Kl. 11:00 í 8.-10. bekk í Ólafsvík (skólabíll fer frá Hellissandi kl. 10:40).
  • Kl. 12:00 í 2.-4. bekk á Hellissandi (skólabíll fer frá Ólafsvík kl. 11:40).

Skólabíll leggur af stað frá skóla að loknum skólasetningum.

  • Kl. 14:00 í 1.-10 bekk í Lýsudeild (þeir sem vilja nýta skólabíla hafi samband við skólabílastjóra).

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl til umsjónarkennara.

Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá föstudaginn 23. ágúst. Nemendur og forráðamenn geta nálgast stundatöflur á Mentor.

Skólastjóri