Hafnir Snæfellsbæjar auglýsa eftir tveimur starfsmönnum
17.02.2022 |
Fréttir, Laus störf
Hafnir Snæfellsbæjar auglýsa eftir tveimur hafnarstarfsmönnum til starfa við Rifshöfn. Viðkomandi munu einnig þurfa að vinna við aðrar hafnir í Snæfellsbæ.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf, annars vegar 20. mars og hins vegar 20. apríl nk. og vera orðnir 20 ára gamlir.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022 og skulu umsóknir sendar til hafnarstjóra á neðangreint netfang. Nánari upplýsingar gefur hafnarstjóri í síma 433-6922 og 863-1153 og á netfanginu bjorn@snb.is.
Hafnarstjóri