Hátíðardagskrá í tilefni af 17. júní 2022

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní verður haldinn hátíðlegur í Snæfellsbæ og verður dagskrá með hefðbundnu sniði.

Allir ættu að geta fundið skemmtun við hæfi og eru íbúar hvattir til að halda upp á daginn með vinum og fjölskyldu og skreyta heimili og garða með fánum og öðru í fánalitunum. Að vanda verður þjóðbúningurinn í öndvegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúning til að sýna sig og sjá aðra.

Dagskrá:

08:00 Íslenski fáninn dreginn að húni 10:30 Landsbankahlaupið

Landsbankahlaupið hefst við Landsbankann í Ólafsvík. Öllum er velkomið að taka þátt. Allir þátttakendur frá glaðning að loknu hlaupi.

  • 5 ára og yngri hlaupa 500 metra.
  • 6-8 ára hlaupa 1,3 km.
  • 9-11 ára hlaupa 2,5 km.
  • 12-16 ára hlaupa 3,5 km.
Kl. 11:00 – 12:30 Lego-samkeppni (móttaka verka)

Tekið á móti Lego-verkum í íþróttahúsi Snæfellsbæjar. Þema keppninnar í ár er Snæfellsbær. Leyfðu hugmyndarfluginu að ráða för og gerðu þína útgáfu af einhverju í Snæfellsbæ. Er það hús, fjall, Jökull, bátur eða haf? Þitt er valið. Opið öllum frá 5 – 16 ára aldri.

Kl. 12:00 – 13:30 Opið hús í Reiðhöllinni

Hesteigendafélagið Hringur teymir undir börnum.

Kl. 13:15 Unglingadeildin Drekinn

Andlitsmálning, nammi- og blöðrusala á vegum Unglingadeildar Drekans í íþróttahúsinu.

Kl. 13:45 Skrúðganga

Skrúðganga frá íþróttahúsinu í Sjómannagarðinn. Fjölmennum öll í tilefni dagsins.

Kl. 14:00 Hátíðardagskrá í Sjómannagarðinum í Ólafsvík
  • Kynnir hátíðar: Hrund Hermannsdóttir
  • Hátíðin sett: Lilja Hrund Jóhannsdóttir
  • Ávarp fjallkonu
  • Helgistund: Sr. Óskar Ingi Ingason
  • Ræða nýstúdents: Aníta Ólafsdóttir
  • Verðlaunaafhending úr TikTik og Lego-keppni
Kl. 15:30 Snæfellsbæjarleikarnir

Það verður líf og fjör í Ólafsvík þar sem Snæfellsbæjarleikarnir fara fram.

  • Knattþrautir með mfl. Víkings Ólafsvíkur
  • Leikir og fjör fyrir börn á öllum aldri
  • Pannavöllur
  • Frisbí-golf
  • Sk8roots Project (við ærslabelginn)
  • Opin sýning á Lego-verkum í íþróttahúsinu
  • Nammi og blöðrusala á vegum Ungmennadeildar Drekans
  • Grillaðar pylsur og svalar fyrir krakkana

Gleðilega hátíð, kæru íbúar!

Auglýsing