Haustgöngur í Snæfellsbæ
09.09.2020 |
Fréttir
Snæfellsbær hefur skipulagt fjölskylduvænar göngur í september sem miða að því að efla heilsu og hvetja til útivistar. Um skemmtilegar gönguferðir í nærumhverfi íbúa er að ræða. Allar göngur eru stuttar og taka um 40-60 mínútur að undanskilinni göngunni þann 20. september. Gera má ráð fyrir að hún taki u.þ.b. tvær klukkustundir.
Tökum þátt, reimum á okkur gönguskó og njótum útivistar í góðum félagsskap.
10. september Gengið um skógræktarsvæðið í Ólafsvík Gengið frá íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 18:00 Leiðsögn: Hilmar Már Arason
20. september Gengið á milli Arnarstapa og Hellna Gengið frá höfninni á Arnarstapa Leiðsögn í höndum landvarða
24. september Gengið inn í Fögruhlíð Lagt af stað frá íþróttahúsinu á Hellissandi kl. 17:35 og frá íþróttahúsinu í Ólafsvík kl. 17:45. Gengið frá Rauðskiðugili kl. 18:00 Leiðsögn: Árni G. Aðalsteinsson
30. september Gengið um Hraunskarð og Krossavík Gengið frá Tröð á Hellissandi kl. 18:00