Heilsudagar Snæfellsbæjar

Snæfellsbær gerir heilsu hátt undir höfði dagana 23. - 30. september og heldur Heilsuviku Snæfellsbæjar í sjöunda skipti.  Þetta er í þriðja skiptið sem heilsuvikan er hluti af ÍSÍ Íþróttaviku Evrópu.

Lögð er áhersla á að bjóða íbúum upp á heilsutengda viðburði og kynningar sem henta öllum aldri.  Fyrst og fremst er þetta kynning á þeim heilsutengdu viðburðum sem eru nú þegar í boði í Snæfellsbæ og ættu því allir að geta fundið sér viðburð við hæfi.

Íbúar eru hvattir til að mæta á viðburði, skella sér í sund, stunda útivist eða aðra hreyfingu - og anda að sér fersku lofti í okkar fallega sveitarfélagi.