Heilsuvikan hefst föstudaginn 8. mars
07.03.2019 |
Fréttir
Meðfylgjandi mynd var tekin á Heilsuvikunni árið 2018. Mikilvægt pizzamót í gangi.
Heilsuvika Snæfellsbæjar hefst á morgun og eru íbúar hvattir til að taka þátt í skipulagðri dagskrá með því að sækja þá viðburði sem boðið er upp á. Þess má einnig geta að frítt verður í sund alla daga sem Heilsuvikan stendur yfir og tilboð verður að finna á einhverjum veitingastöðum og verslunum. Dagskrá og tilboð verða auglýst daglega á Facebook-síðum Snæfellsbæjar og Heilsuvikunnar.
Hér að neðan má svo finna nokkra áhugaverða viðburði sem eru hluti af Heilsuvikunni og eru sérstaklega auglýstir á Facebook:
Go West býður í göngu að Snæfellsjökli Fyrirlestur - Aukin útivera fjölskyldunnar. Hugmyndir og innblástur Fyrirlestur með Pálmari Ragnarssyni um jákvæð samskipti Fyrirlestur með Sölva Tryggvasyni um leiðir að bættri heilsu