Hjúkrunarfræðingur óskast á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80% starf. Um framtíðarstarf er að ræða.

Á Jaðri eru 16 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Heimilið var stækkað árið 2011 og er aðstaða íbúa og starfsmanna mjög góð.

Helstu verkefni og ábyrgð:
 
  • Umsjón og skipulag með hjúkrunarstarfi
  • Fagleg ábyrgð á hjúkrunarstarfi

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  •  Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptahæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi

Umsóknarfrestur til 20. nóvember 2023.

Laun skv. kjarasamningi FÍH og sveitarfélaga. Aðstoð við útvegun húsnæðis stendur til boða.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður Jaðars, í síma 865-1525 eða á netfanginu sigrunerla@snb.is.

Umsóknir berist í gegnum starfasíðu Snæfellsbæjar hjá Alfreð.