Hjúkrunarfræðingur óskast á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar
28.10.2024 |
Fréttir, Laus störf
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa. Um er að ræða 50 - 100% stöðu í framtíðarstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og skipulag með hjúkrunarstarfi
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og góða samskiptahæfni
- Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi
Fríðindi í starfi:
- Starfsfólk hjá Snæfellsbæ á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
Umsóknarfrestur til 11. nóvember 2024.
Laun skv. kjarasamningi FÍH og sveitarfélaga. Aðstoð við útvegun húsnæðis stendur til boða.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður Jaðars, í síma 865-1525 eða á netfanginu sigrunerla@snb.is.
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar.